Mynd: Magnús A. Sveinsson
Karlmaður óskast í 65% starf í Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar
Starfstöðvar eru á Siglufirði og Ólafsfirði, og skiptast vaktir tiltölulega jafnt á milli beggja starfstöðva. Sökum eðli starfsins koma karlmenn einungis til greina.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit og gæsla í sundlaug.
- Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar.
- Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
- Almenn þrif og annað sem til fellur.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa bílpróf og bíl til umráða.
- Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerðar nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
- Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
- Hreint sakavottorð.
- Góð kunnátta í íslensku er skilyrði, enska og þriðja tungumál er kostur.
- Góð tölvukunnátta er kostur.
Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf.
Vinnutími: Morgun- og kvöldvaktir.
Umsækjendur þurfa að gefa leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið.
Umsóknir sendist á skarphedinn@fjallabyggd.is til og með: 18. mars 2024 og verður öllum umsóknum svarað.
Nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, netfang: skarphedinn@fjallabyggd.is og farsími 866 9136